VÍXLKLIPPING: SAMNORRÆN TEIKNIMYND Kvikmyndir

VÍXLKLIPPING: SAMNORRÆN TEIKNIMYND

TAKIÐ ÞÁTT Í FRAMLEIÐSLU TEIKNIMYNDAR MEÐ ÖÐRUM NORRÆNUM UNGMENNUM

Ætlar bekkurinn þinn að taka þátt í því að framleiða teiknimynd með öðrum nemendum frá Norðurlöndunum? Í kennsluferlinu er lögð áhersla á kvikmyndaframleiðslu og þið takið þátt í að búa til teiknimyndaatriði með stillumyndum fyrir kvikmyndaverkefni. Nemendur frá öllum Norðurlöndunum taka þátt í verkefninu. Einfaldar aðferðir og auðskilið ferli sem veitir ykkur tækifæri til að skapa skemmtilegar persónur og hasar! 

BUSTER mun vinna með atvinnuleikstjóra og fagmanni í framleiðslu teiknimynda. Atriðunum verður safnað saman og klippt í eina mynd sem frumsýnd verður á þessari síðu. 

Takið þátt fyrir 1. nóvember 2024 og deilið ykkar skemmtilegu, skrýtnu og skapandi hugmyndum!

KEPPNI
Með því að taka þátt eigið þið möguleika á að fá vinning sem felur í sér kvikmyndaveislu fyrir bekkinn að virði DKK 5.000.

HVERNIG TÖKUM VIÐ ÞÁTT?

Teiknimyndin fjallar um kind sem ekki vill láta klippa ullina á sér. Í staðinn vill hún mjög gjarnan eignast vin. Þið eigið að skapa skemmtilegar persónur og hasar fyrir söguþráðinn!

Lýsing á öllu ferlinu er að finna í vinnublaði fyrir nemendur, það inniheldur kynningu á gerð teiknimynda og stillumyndum, sem og atriði sem þið þurfið að hafa í huga þegar handrit er samið. 

https://nordeniskolen.org/is/

Um verkefnið:

https://nordeniskolen.org/is/vixlklipping-samnorraen-teiknimynd/

Hlekkur á kennsluefni: 

https://nordeniskolen.org/is/kennsluefni/kennsluleidbeningar-samnorraen-teiknimynd?culture=is

 

Upplýsingar
Hvað

Vinnustofa

Hvenær

Haust 2024

Hvar

Allt landið

Hverjir

Bíó Paradís og Norden i skolen

Aldurshópur

6. - 10. bekkur

Aðstaða og tækni

Kennsluskrá, rafrænt kennsluefni og verkefnablöð.