20. janúar 2020

Dúó Stemma á Suðurlandi

Árið byrjar vel, um þessar mundir ferðast Dúó Stemma með viðburðinn Heyrðu villuhrafninn mig um allt Suðurland og á döfinni eru eftirfarandi viðburðir Listalestin, After the fall,  Hnýtum hugarflugur og  Stelpur rokka. Það er því líf og fjör í starfsemi List fyrir alla.

Einnig er List fyrir alla í samstarfi við Reykjavíkurborg, Barnamenningarhátíð og Tónlistarborgin Reykjavík að undirbúa glæsilega Evrópska tónlistarhátíð fyrir börn – Big Bang sem haldin verður í Hörpu 25.apríl. Endilega fylgist með fréttum.

Hér má finna gott yfirlit yfir viðburði síðastliðins hausts:

Auk þess hefur List fyrir alla átt frábært samstarf við Listasafn Árnesinga/Einu sinni var /Listasafn ASÍ/Kjarval á kerru Trúðavaktina, Listasafn Íslands/Listasafn Akureyrar/Vídeóvinda  og Skaftfell/myndlistarmiðstöð Austurlands/íslensk alþýðulist.