Öll börn Grunnskóla Hornafjarðar taka þátt í skapandi listasmiðju undir leiðsögn Hönnu Dísar Whitehead. Unnið verður með væntumþykju og persónuleg tengsl við Vatnajökul þar sem áhersla verður lögð á gildi fegurðar jökulsins bæði í nálægð og fjarlægð. Í smiðjunni rannsaka börnin eigin minningar, upplifanir og þekkingu á jöklinum, hvort sem þær spretta úr daglegu umhverfi þeirra, sögum, ferðum eða sjónrænum áhrifum landslagsins.
Börnin kynnast jafnframt rannsóknum Þorvarðar Árnasonar sem starfar við rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Höfn. Hann hefur í tvo áratugi rannsakað Vatnajökul með listrænum aðferðum. Þorvarður nýtir kvikmyndir, ljósmyndir og aðra sjónræna miðla til að fanga tíma, breytingar og nærveru jökulsins. Í smiðjunni fá nemendur innsýn í þessi verkefni og læra um þær miklu breytingar sem Vatnajökull hefur gengið í gegnum á undanförnum árum.
Með fjölbreyttum sköpunaraðferðum fá börnin tækifæri til að vinna úr bæði tilfinningum og þekkingu á jöklinum. Þau skoða hvernig list getur vakið spurningar, eflt áhuga og hjálpað okkur að sjá náttúruna á nýjan hátt.
Niðurstaðan er lifandi og persónuleg sköpun barna sem endurspeglar samband þeirra við eitt merkasta náttúrufyrirbæri Íslands – Vatnajökul. Niðurstöður verkefnisins verða sýndar í Norrænahúsinu í Reykjavík vorið 2026 í tengslum við sýningu sem fjallar um Jökla og loftslagsbreytingar.
Hanna Dís Whitehead er hönnuður og listakona sem vinnur á mörkum nytjalistar og frjálsrar sköpunar, þar sem hún rannsakar nærumhverfi sitt með næmni fyrir efni, litum og formum. Í verkum sínum sækir hún innblástur í hversdagslegar aðstæður, landslag og persónulegar minningar, og skoðar hvernig hönnun getur orðið samtal við stað og samfélag.
Hanna Dís leggur sérstaka áherslu á endurnýtingu og efnivið sem ber með sér sögu, bæði í efnislegum og hugmyndafræðilegum skilningi. Hún vinnur gjarnan með endurunnin eða afgangsefni og breytir þeim í nýjar frásagnir og hlutverk, þar sem sjálfbærni og virðing fyrir umhverfinu fléttast saman við leikandi og tilraunakenndan sköpunarferli.
LÁN
Nóvmeber 2025
Grunnskóli Hornafjarðar
Hanna Dís Whitehead
1. - 10. bekkur
Listasmiðja með fjölbreyttum efnivið, þar sem emndurnýting er höfð að leiðarljósi.






