Málæði Tónlist

Málæði

List fyrir alla og Bubbi Morthens  taka höndum saman og bjóða unglingum í grunnskólum landsins til þátttöku í nýju íslenskuverkefni. Málæði er ætlað að hvetja ungt fólk til að tjá sig á íslensku í tali og tónum. Skilaboðin eru þau að tungumálið tilheyri okkur öllum –  það megi leika sér með það. Þátttakendum gefst möguleiki á að vinna með þekktu íslensku listafólki að tónlistar- og textasköpun. Afraksturinn verður opinberaður á RÚV í viku íslenskunnar 11. – 16. nóvember 2024.

Bubbi hefur samið glænýtt lag og skorar á unglinga að semja texta. Textinn á að fjalla um Sumarið ‘24 en Bubbi samdi sem unglingur lagið Sumarið ‘68. Nýja lagið hefur verið  gefið út á myndbandi sem Bubbi trallar inn á en kennarar og unglingar eru hvattir til að senda inn skrifleg svör á vefsíðu verkefnisins. Fullbúið lag með nýjum texta frá unglingum landsins verður gefið út í viku íslenskunnar 11. – 16. nóvember.

Önnur leið til þátttöku felst í að unglingar semji lag og texta og höfundar valinna laga fá að vinna með listafólki að því að útsetja þau. GDRN og Emmsje Gauta taka þátt í þessum hluta. Valnefnd sem stýrt verður af Bubba mun velja þrjú lög til að frekari vinnslu. 

Þriðji hluti verkefnisins fer fram á samfélagsmiðlum Málæðis. Hinir ungu leikarar Katla Þóru- Njálsdóttir og Mikael Emil Kaaber halda utan um gleðskap á samfélagsmiðlum. Þar munu þau bjóða upp á leiki, leikþætti, áskoranir, og leita að orðum yfir fyrirbæri sem unglingum finnst erfitt að orða á íslensku.

Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu List fyrir alla https://veita.listfyriralla.is/malaedi/

 

 

Upplýsingar
Hvað

Tónlist

Hvenær

Haust 2024

Hvar

Allt landið

Hverjir

Bubbi Morthens og fleira tónlistarfólk

Aldurshópur

8. - 10. bekkur

Aðstaða og tækni